Svanabanana

Kom inn

04.12.2006 18:56:55 / svana

"Nakið fólk"

Ég er farin að spila PS2 leiki!  HAHA.........ég hélt að það myndi alrei gerast, en neyðin kennir naktri konu að spinna....við Andy höfum ekkert að gera á dagin svo að við keyptum WORMS, leikur sem ég spilaði í PC tölvunni hans pabba þegar ég var krakki.  Bara gaman að kála hvort öðrum með gamalli konu eða sprengi kind.

Við erum ekki búin að ákveða hvenær við förum austur,  við ætlum að stoppa á Akureyri allavega 1 nótt og monta okkur af skvísunni þar aðeins, en við erum búin að ákveða að fara aftur suður 27 des.  Og þá líður ekki á löngu þar til hestarnir koma á hús JEIJ!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 14:11:05 / svana

Jólin koma

Núna fara allir (ef ekki byrjaðir) að pæla í jólagjöfum, jólamat, jólakortum, jólaskreytingum, jólafötum, jólahárgreiðslu, jólamegrun, jólabrúnku o.s.f.v.  skoðið þetta!! http://unicef.is/   Og styrkið gott málefni!!

..::Betra er að gefa en þiggja::..


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 20:40:46 / svana

Stúlkan NEFND

Í dag nefndum við litlu dóttur okkar Jessicu Ósk!  Nafnið hefur bara fallið vel í kramið....enda fallegt eins og hún :lol:   Það var nóg af sætabrauði á boðstólum og heitt kakó a la mamma mía.  Það er gott að vera búin að nefna hana þó að hún verður skírð á næsta ári þegar bróðir hans Andy kemur í heimsókn. 

EN ég verð nú aðeins að tala um Herra Ísland hérna.....þetta var góð skemmtun að horfa á alla þessa feimnu..... sumir frekar öruggir með sig þó! STRÁKA......og ég meina er ekki hægt að finna einhverja myndarlega MENN til að taka þátt í þessari keppni?  Og svo mætti kannski slaka aðeins á make upinu og brúnkunni hjá greyið strákunum.....svo ekki sé talað um hárið! OMG!  Ég er viss um að lang flestir af þessum strákum muni sjá eftir því að hafa tekið þátt svona ungir.  En þetta er bara mín skoðun.

..::hverjum þykir sinn fugl fagur::..  


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 17:56:33 / svana

Barasvara

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 19:04:47 / svana

Stúlka Lavender

Ég gerði heiðarlega tilraun til að gera barnalandssíðu....ekki flott!  En!! Helga Rósa fékk örugglega hugboð frá mér og bauðst til að gera hana fína fyrir mig, svo að núna er voða fín síða tilbúin að ósk Freydísar, ég þarf bara að setja inn myndir.  Það eru eiginlega engar myndir til frá spítalanum, við bara vorum ekkert að hugsa útí að taka myndir af gellunni.....við vorum ekki alveg í sambandi.

Þetta er slóðin http://barnaland.is/barn/54149


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 12:54:57 / svana

barnalán

Nú erum við orðin mamma og pabbi!  Hún lét loksins sjá sig eftir langa bið litla dóttir okkar  :)  Takk fyrir allar hamingju óskirnar frá öllum!  Ég ætla að drífa mig í að setja upp barnalandssíðu fyrir hana bráðum svo að myndirnar þurfi ekki að vera inni á dýraríkinu mikið lengur!!!  8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 17:23:41 / svana

bíbí

Barnið er ekkert að láta kræla á sér, við fórum meira að segja á Austurkot í gær til að kíkja á merarnar, en höfðum ekki erindi sem erfiði!  Fyrst fórum við í vitlausa átt og löbbuðum í svona hálftíma í ranga átt en áttuðum okkur og snerum við, þá löbbuðum við í svona annan hálftíma þar til við komum að hestunum sem voru næst okkur.....þær voru ekki þar, heldur örugglega einhverstaðar lengst neðst í stykkinu, við sáum við sjóndeildarhringinn annan hrossahóp og ákváðum að nenna ekki að labba þangað.  OG allt þetta labb kom mér ekki einu sinni af stað!  Heldur gerði mig bara dauðþreytta.

Ég hitti Freyju vinkonu í dag, hún er orðin frænka, systir hennar eignaðist tvo stráka í gær......til hamingju með það.  Við Andy hittum hana á Barnum og fengum okkur kaffi og mömmu smáköku, svo ætluðum við að hitta Baldvin kærastann hennar og fara saman og sjá Borat, en það var uppselt :(  ég næ örugglega ekki að sjá þessa mynd í bíó.....þessi mynd er örugglega alger snilld!  I kiss u........

Páfagaukurinn er ennþá mjög þögull.....fyrir utan eitt og eitt flaut, hann fílar það tildæmis rosa vel þegar  Andy er í Grand Theft Auto og löggan er á hælunum á honum.  Enn hann kann varla að fljúga heldur, flýgur bara á og hrapar!  Skrítinn páfagaukur þetta  :$

..::betra er að fara í bíó en í taugarnar á fólki::..


» 23 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 10:16:26 / svana

Bíumbíum bamba.......

Ég svaf í alla nótt og allan morgun!!!!  Þetta er kraftaverk og það heitir Vala!!!  Í gær fór ég í skoðun og strax eftir hana fór ég í vinnuna til Helgu Aspar til að fá smá nudd  hjá Völu sem gæti kannski komið mér af stað.  Svo kom hún heim til mín í gærkvöldi og nuddaði mig, það var þvílíkt afslappandi!  Ég er reyndar ekki búin að eignast barnið, en þetta var samt æði!  Ég man ekki hvenær ég svaf seinast heilan svefn.

Svo aðrar góðar fréttir;  við erum komin með pláss fyrir hestana á góðum díl. Og við megum moka og allt ef við viljum :lol:  OG Lindi vinur getur kannski líka fengið pláss í sama húsi.

Andy gat ekki beðið lengur eftir barninu í gær......svo að hann keypti sér páfagauk :D  Þetta er dísargaukur, 2ja ára strákur og heitir ekkert ennþá.  Hann heldur að hann sé risastór og flautar bara á mann; en er búinn að vera frekar feiminn síðan hann kom heim og segjir ekki orð.  Við verðum örugglega orðin vinir eftir nokkra daga........

..::hver velur sér vini eftir viti::..


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 10:47:50 / svana

Bingó

Planið fór víst eitthvað úr skorðum þarna á laugardagin...... en sölusýningin var ágæt, þó fannst mér flest hrossin vera á of háu verði miðað við ganglag; ég held að fólk góni bara á fótalyftuna og svo ekkert meira.  Þó voru 2-3 hross sem ég hefði verið til í að eiga!  Í hléinu birtist svo alltíeinu Sóley, að reyna að finna smá hestalykt eins og við Andy.  Við keyptum okkur happdrættismiða og vorum báðar viss um að við ynnum hnakkinn.......en við unnum ekki einu sinni folatoll.....heldur vann ég "matarbakka"; ég hélt að þetta væri einhver bakki með mat á.......en í rauninni voru þetta 2 jólasmáköku diskar.  Hehehehe, ég vann allavega eitthvað!   

Svo fórum við á leikinn og auðvitað MÖLUÐUM  við andstæðingana!  En eftir það klikkaði planið eitthvað og við enduðum bara heima í staðinn fyrir á fæðingardeildinni. 

..::snörunni kennir hengdur maður::..


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 10:01:32 / svana

Its a plan!

Ég er í fýlu!  Afþví að ég þarf að henda kryddjurtunum  mínum!  Ótrúlega fúlt þegar hvít fluga fylgir með í kaupunum, þetta voru gæludýrin mín  :cry:  Ég verð bara að fá mér strax ný svo að ég jafni mig nú örugglega á þessu...........

Dagurinn er alveg planaður í dag, við ætlum að fara á sölusýningu í Víðidal eftir hádegi og svo er Man U að spila klukkan 3.  kannski að maður rekist á Ævar og Guðjón þar..... allavega Guðjón, hann heldur með LIÐINU!!!  Og svo strax eftir leikinn ætlum við niður á fæðingadeild.......djók  ;)

..::ber er hver borinn::..


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 07:11:56 / svana

gobbiddigobb.....

Núna stendur maður á haus að leita að plássi fyrir hestana í vetur, ég verð ekki hjá Mugg, hann er kominn með annan leigjanda.  Ég hlakka svo til að taka merina inn, þó það sé ekki nema bara til að kemba og finna lyktina eða eitthvað!  Enn það verður ekkert mál að finna eitthvað, málið er bara að finna eitthvað hagstætt....gangi mér vel! 

Ég ætla út að ganga í dag.......kannski gerist eitthvað þá, afþví að ég hreyfi mig aldrei!  Ætli barninu bregði ekki í brún ef ég skildi nú fara að taka upp á einhverju svoleiðis?  Núna er ég nefnilega tilbúin til að fara á fæðingadeildina, ég fór sko til Sirrýar í gær  :lol:

..::leitið og þér munið finna::..


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 09:46:31 / svana

!Útsalaútsala!

Nú má þetta alveg fara að gerast :lol:  ég held að barnið verði komið fyrir helgi (allavega vona það)  Það gerist þegar það gerist og þá gerist það......

Margrét kom í mat í gærkvöldi, við vorum mjög þjóðleg á þessu og elduðum bayonskinku með tilheyrandi, svo þurfti Margrét að skjótast í TANGO, hún er búin að æfa tango í svolítinn tíma, það er örugglega æði!!!  Mig langar að læra latino dansa!  Og held að Andy sé bara til í það :)

Það var útsala í nýja bónus á Smáratorgi í gær; og þetta er sko önnur risa útsalan sem ég fer á núna á stuttum tíma og ég held að fólk sé að tapa sér í gleðinni!!  Um dagin fórum við á útsölu í IKEA fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra; og án gríns að þá var mér nú bara ekki sama um framganginn í fólkinu þarna, þetta var bara eins og í bíó, fólk hlaupandi um rífandi upp hluti, kastandi dóti til og frá í æðiskasti og konur hvæsandi á hvor aðra ef þeim langaði í seinasta svona sængurverið!  Það endaði með því að við Andy flúðum vettvang með tómar lúkur! 

..:::):lol::|:S::..


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 13:22:26 / svana

Ekki Astra

Við duttum niður á svaka fínan Nissan Almera og erum bara sátt með það.  Miklu betri kaup en Volvo.......nóg um bílamál, ég veit hvort sem er ekkert um bíla!

Pabbi gisti hjá okkur í nótt og vígði þar með barnaherbergið.  Hann var á þingi í Borgarnesi um helgina, ég var æðislega ánægð að hitta hann smá :D  Og auðvitað blaðrað aðeins um hesta og svona, Helga Rósa lucky bastard tekur inn 1 des! hehe, og ég er annar lucky bastard því þegar við förum austur um jólin get ég kannski fengið að stökkva á bak ;)

Sóley ég lofa að láta vita um leið og ég er búin að eiga, hehe.... það er enginn smá spenna í gangi.  Ég fatta nú ekkert að barnið verður komið eftir nokkra daga,  þetta verður yndislegt.  Ætli það sé nokkuð sem maður  getur sagt til að lýsa því?

..::hver er sinnar gæfu smiður::..


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 10:38:43 / svana

Astra eða ekki Astra???

Við urðum að hætta við volvoinn því miður, og ætlum að fá okkur bara einhvern ódýrari......erum mikið að spá í Opel Astra.  Mér finnst það fallegur bíll, hann er vel farinn og passlega stór......það er spurning hvað gerist??????

Enn loksins erum við komin með netið hérna heim!  búin að bíða í 3 vikur eða eitthvað að þetta tengi sig.....ég hringdi reyndar í BT í gærmorgun og kvartaði og eins og fyrir kraftaverk var netið komið í gang um kvöldið, kannski eihver tenging þar á milli?

..::þú uppskerð það sem þú sáir::..


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 16:11:42 / svana

Víst

Ég er BÚIN með peysuna!!!!  hehehehe!!!  og byrja á kjólnum á morgun ef ég finn garnið sem Helga vill.....Helga, Arndís fær kjólinn sinn!

Andy ætlar að kaupa handa mér VOLVO.  Mikið verður maður fjölskyldulegur, með sænskan barnavagn og á sænskum bíl.

Annars er ekkert merkilegt að gerast annað en biðin, allt í góðu bara.....

..::þolinmæðin þrautir vinnur allar::.. 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5